<$BlogRSDUrl$>

Saturday, February 28, 2004

Jæja þá er búið að flytja allt og búin að kveðja Nesveginn með tár í augum
enda margar og skemmtilegar minningar frá Nesveginum.
Búin að fara með allt draslið heim og á því bara eftir að láta það í herbergið mitt. Vinsamlegast
hringið í mig ef ykkur leiðist og vildið gera þetta fyrir mig.

Er að fara að byggja brú á morgun sem á að vera 500mm löng og á að þola 50KN þunga
það verður sko skemmtilegt. Við ætlum að hittast heima hjá Örnu Vigdísi

Svo er auðvitað forsala fyrir Korn tónleikana klukkan 2100 í skífunni á morgun og ætli maður mæti ekki
þangað að kaupa sér miða. Vona samt ekki að ég þurfi að bíða í röð í marga marga klukkuíma í röð.

Svo er bikarleikurinn í handbolta akkurat núna og mig langar að vera þar að öskra úr mér lungun, þó mínir menn hafi dottið úr í undanúrslitunum (VALUR VALUR VALUR VALUR VALUR) þá held ég með Fram í þessum leik, þeir eru miklu skárri en þessir hel... KA menn.

Svo langar mig að fara í keilu, á kaffihús, horfa á vídeó, fara í bíó, á tónleika, fara á dansnámskeið, vera í JC-hreyfingunni, kunna á gítar, læra að syngja, vera konan hans Ruberts, fara í bláalónið, til útlanda og svo margt margt fleira
en nei ég held að það verði að bíða betri tíma....

Lov jú gæs

Friday, February 27, 2004

Jæja loksins...

Eftir að hafa tekið góðan trylling á seinata fösutdag er ég
búin að anda nokkrum sínnum og ttfr er kannski ekki svo leiðinlegt fag (eða þanga til næsta verkefni kemur).

Á föstudaginn fór ég á árshátíðina hjá verkfræðinemum og það var ekkert smá gaman. Fór keyrandi yfir á Hveragerði (en þar var hún haldin) um 1600 með Rósu, Jóhönnu og Lilju. Svo var drukkið og svo borðað allt í lagi mat svo drukkið svo dansað svo drukkið og bla bla. En núna er ég orðin æst í að drífa mig í vísindaferðirnar og fara að djamma með þessu liði enda rosa hresst og rosa dansarar ;)

En ég fór vestur á laugardaginn og það var rosa fínt. Fór og skoðaði nýja prinsinn hennnar
Þóru Ingimars allt laugardagskvöldið og vildi eiginlega ekkert sleppa honum enda rosa fallegur strákur
Hefði alveg viljað fá hann lánaðan í nokkra daga en örugglega viljað skila honum aftur enda lítil sem engin
mjólk í brjóstunum og ælur og skítableyjur ekki mitt fag (kannski eftir 10 stykki af árum eða svo).

Svo fór ég og Sandra (dróg hana líka með mér vestur) á þorrablót þar sem var tekinn trylltur dans á þorrablóti Sléttuhreppinga og auðvitað var líka tekið sporið með ömmu dreka.

Svo voru það bara bollurnar hjá ömmu og matur hjá Emma og Guðný sem hélt mér gangandi til þriðjudagsins
og verð nú að segja að það var rosa gott að koma til Reykjavíkur, aftur í skólann og aftur heim (ég veit ég veit)

Var í prófi í burðarþolsfræði... guð gekk líka svona glymrandi eða.... ekki.
Allir brjálaðir yfir þessu prófi og bla bla. En þetta gildir ekki nema 10% af lokaeinkunn þannig að mér er nokk sama

Er núna á leiðinni heim á Nesveginn sem verður bráðum ekki heimili mitt lengur enda flytja aftur heim til mömmu og pabba enda er líka best ad vera þar. Þannig að það verður bara lært og pakkað um helgina en svo ætla tvíburarnir Rósa og Lilja kannski að halda partý á næstu helgi sem mér líst rosa vel á...

Jæja læt þetta gott í bili og lofa að það komi ekki aftur svona mikið hlé

KOSSAR

Friday, February 20, 2004

Er að fríka út

Ekki skemmtilegt frík út eins og í laginu hjá grýlunum heldur er að taka EINN STÓRAN TRYLLING

Þoli ekki tölvuteikninguÞoli ekki tölvuteikningu Þoli ekki tölvuteikningu Þoli ekki tölvuteikningu Þoli ekki tölvuteikningu Þoli ekki tölvuteikningu Þoli ekki tölvuteikningu Þoli ekki tölvuteikningu Þoli ekki tölvuteikningu Þoli ekki tölvuteikningu Þoli ekki tölvuteikningu Þoli ekki tölvuteikningu Þoli ekki tölvuteikningu Þoli ekki tölvuteikningu Þoli ekki tölvuteikningu Þoli ekki tölvuteikningu Þoli ekki tölvuteikningu Þoli ekki tölvuteikningu

Þetta helv... djöf....ansk...druslu fag.

HATA ÞAÐ

Wednesday, February 18, 2004

Var heima hjá m og p í gær en Eydís systir er að fara vestur um helgina (laug-þrið), þá aðallega
til að ná maskadeginum heima. Mamma vildi að e-r færi vestur með henni
og lítur út fyrir að það verði ég.
Náttúrlega CRAZY að gera í skólanum þannig að það verður bara lært heima hjá
ömmu og kíkt í heimsókn.
Svo er náttúrlega aldrei flogið þegar ég fer vestur þannig að ég ætti kannski ekki
að hafa neinar áhyggjur. En Eydís verður þá náttúrlega ekki sátt.

en ég ætla að drulla mér í helv... tölvuteikninguna

Monday, February 16, 2004

Fann þetta á netinu og ég skemmti mér vel (aulahúmorinn á fullu)... Njótið



*Lorta listinn*

DRAUGA LORTUR: Þú finnur lortinn koma út en það er enginn lortur í klóinu.

HREINN LORTUR: Þú lortar, sérð hann í kósettinu en það kemur ekkert á skeinipappírinn.

BLAUTUR LORTUR: Þú skeinir þér 50 sinnum og þér finnst þú enn óskeindur, þú þarf því að setja klósettpappír á milli bossans á þér og nærbrókanna svo að þú blettir ekki brækurnar.

TVEGGJA LOTU LORTUR: Þú ert búinn að lorta, hysjar buxurnar upp að hnjám en fattar þá að þú þarft að lorta meira.

SPRENGJA-ÆÐ-Í-HAUSNUM-Á-ÞÉR LORTUR: Þú rembixt svo mikið til að koma honum út að þú færð næstum því slag.

TRÖLLA LORTUR: Lorturinn er svo massívur að þú þorir ekki að sturta niður fyrr en þú ert búinn að brjóta hann í marga smærri lorta með klósettburstanum.

HVELL LORTUR: Hann er svo hávær að allir sem heyra til eru flissandi.

RÓNA LORTUR: Þynnkulorturinn er auðkennanlegur af bremsuförunum sem hann skilur eftir sig á botni klósettsins.

KORNÓTTUR LORTUR: Skýrir sig sjálft.

ÉG-VILDI-AÐ-ÉG-GÆTI-LORTAÐ LORTUR: Þig langar að lorta en það eina sem þú getur gert er að sitja á klósettinu og prumpa nokkrum sinnum.

BLAUT BOTNA LORTUR (Kraft skitið): Hann kemur svo hratt út að vatn skvettist á rassinn á þér.

ÞRJÓSKUR LORTUR: Lorturinn fer bara ekki í klósettið þó þú sért búinn að lorta. Þú verður bara að vona að það dugi að hrista þig aðeins.

PRAKKARA LORTUR: Þú ert ekki einu sinni á klósettinu af því að þú ert viss um að þú sért bara að fara að prumpa en *obbosí* ---- lortur!


Jæja eskurnar mínar...

Já það var sko tekinn góður trillingur á laugardagskvöldið.
Það kom bara fullt af fólki í heimsókn og rosa gaman. Mikið hlegið (öskrað), dansað (hoppað),
drukkið (þambað) o.s.frv.
Edda, Sandra, Thelma, Össi og Hulda komu. Svo hringdu stelpur sem eru með mér í verkfræðinni og þær komu og svo líka
Palli frændi og vinur hans.
Ég og Hulda urðum fljótt skilin við hópinn þegar við vorum komnar niðr í bæ
og við fórum fyrst á þjóðleikhúskjallarann, svo Solon, Nellýs, Felix, Nellýs, Solon og svo má lengi telja.

Hittum svo allt liðið sem var í afmæli hjá henni Höllu Maríu og e-a fleiri.

Svo er ég að fara á árshátíðina á föstudaginn en held að ég þurfi að fara nakinn, ég vona að það sé
allt í lagi. En svo er spurning hvort maður eigi að ráðast á fataskápinn hjá systur sinni þar sem
hún á svo mikið af skemmtilegrum fötum.

jæja ætla að fara að gera e-ð að viti þar sem lítið var gert um helgin...

Og bara svona fyrir kvöldið

GO RUBERT

Saturday, February 14, 2004

Var að lesa að Sunna hafi unnið í idol vestfirðir..
Til hamingju Sunna ;)


Friday, February 13, 2004

Jæja krakkar mínir.... fullt að gerast hjá mér núna og maður er stressaður en líka hlakkar maður til....

Var að klára skilaverkefnin í buðrarþolinu og í líkindareikningi en á eftir að gera skilaverkefnið í
tölvuteikningu og það er klikkað.
Á að teikna varpanir, partalista og bla bla bla..
Ætla að gera það á morgun en hef bara tíma frá 8 um morguninn til 20 um kvöldið...
þannig að það verður mikið bara copy past af gömlum verkefnum...

Núna eftir 5 mínutum byrjar hönnunarkeppnin í véla-og iðnaðarverkfræði og ég
tími ekki að sleppa að sjá hana þó ég eigi eftir að gera þetta verkefni.
Ég hef aldrei nennt að horfa á hana í sjónvarpinu en núna er ég bara frekar spennt að sjá hana
(vá maður er orðið svoldið mikið nörd e-ð). Svo klukkan 3 þarf ég að sækja Eydísi og skutla henni í danskennslu, klukkan 1530 er það sjúkraþjálfun og svo er ég að fara að passa fyrir Lydíu Ósk frænku. Þannig að það er bara nóg að gera.

Var svo að kaupa árshátíðarmiða hjá verkfræðinemum sem er á föstudaginn eftir viku á Hótel örk í Hveragerði.
Á náttúrlega enginn föt en það er aldrei að vita hvort Arna Vigdís vilji ekki lána mér e-r erum nefnilega í sömu stærð ;)
En ég sit með tvíburunum, Lilju og Rósu, Jóhönnu og e-m fleira fólki (er að reyna að plata Örnu líka)

Svo er bara djamm á laugardaginn en það er fullt af fólki að fara að djamma. Afmælisveisla hjá henni Höllu, Hrun (sem er með mér í verkfræðinni) og svo er ég að fara að djamma með Eddu Maríu, Thelmu, Söndur og........ Hlakka mikið til.

Jæja orðin sein á keppnina....

Kossar

Tuesday, February 10, 2004

Jæja Sandra var að hringja í mig
og það var ákveðið að skella sér í kringluna á eftir.
Hlakka bara mikið til enda ekki búin að kikja í kringluna alveg ofsa ofsa lengi.
Svo er aldrei að vita hvort maður finnur e- ð fallegt til að vera...

En haldið ykkur fast... ég ætla nefnilega að kíkja út á djammið á laugardaginn...
Orðið langt síðan það var og vona að það verði e-ð gaman

Já vil bara láta ykkur vita að klukkan hjá mér er vitlaus, 2 tímum of fljót þannig að það er ekki alveg
að marka hana. Ef þið viljið tala á spjallinu, sem ég vil endilega að þið gerið, þá er gott að
skrifa bara með enskum stöfum, annars skilur maður ekki neitt

OGGGG EKKI GLEYMA AÐ SKRIFA Í GESTABÓKIN


KOSSAR

Monday, February 09, 2004

GGGGGUUUUUUUUUUUÐððð

Var að lesa á netinu að KORN eru kannski að koma hingað og spila 30 maí......... JÁ þið
vitið ekki hve lengi ég er búin að bíða eftir þessu (jú kannski Þóra vinkona).
Ég og Þóra voru nefnilega búnar að ákveða að fara á Korn tónleika saman síðan við
vorum í 9. bekk... en þar sem tímar eru breyttir (Þóra komin með 2 börn) þá veit ég ekki hvort hún sé
enn tilbúin að koma með mér.... EN ég fer... ein eða með 1000 manns

En mjög líklega er hún og fjölskylda hennar að koma suður um helgina
og fæ ég þá að líta á litla prinsinn hennar....


KOOOORRRNNNN

Jæja loksins loksins kemst ég í tölvu
Ég var heima hjá m og p yfir alla helgina og var engin tölva þar og því ekkert skrifað á bloggið

Lítið gert nema horft á sjónvarpið og borðað nammi yfir helgina. Á laugardaginn var lokað
upp í bláfjöll og á sunnudaginn fór Hanna Rósa á skíði þannig að ég fór ekkert á skíði
yfir helgina svo það verður bara að bíða þanga til á páskunum...

Var ekkert smá þreytt í morgun og fór á kaffistofuna niðr í háskólabíó og steinsofnaði á líkindareikningarbókinni minn.
Þessi lúr var í 40 min +.... vá er hægt að vera alltaf svona þreyttur. Skil ekki þessa svefnsýki í mér alltaf þreytt

Svo var Þórey og Sandra systir hennar í heimsókn yfir helgina. Auðvitað veðurtepptar á föstudaginn
en á laugardaginn fóru þær, Edda og Össi í keilu.... ég er búin að suða um að fara í keilu en loksins
þegar það er farið þá kemst ég ekki með ;(

En það verður bara næst....

Svo er ég og Thelma að flytja út um mánaðarmótin. Thelma að fara vestur og ég bara heim til m og p, eða jafnvel ömmu.. fer
bara eftir því hvað Hanna Rósa gerir.

En ætla að drífa mig að klára stæ skiladæmin...

Kossar

Tuesday, February 03, 2004

Hæ fallega fólk sem les þetta

Fín helgi og róleg eins og svo oft vill verða. Fór í mat til m+p á sunnudaginn í steik og næs og
það var ekkert smá fínt.
Í gær gerðist heldur ekkert, nema að ég horfði á SURVIVOR, GO RUBERT.

Vildi að það væri til svona maður til á Íslandi. Mundi gera allt til að ná mér í hann.
Hann er algjört ÆÐI. Anthony Hopkins er meiri að segja búin að víkja fyrir honum og þá er sko mikið sagt
Hér með auglýsi ég eftir manni sem er eins og Rubert, guð ég dýrka hann. Það er ekki hægt að horfa á survivor með mér
þar sem ég get ekki hætt að tala um hvað mér finnst hann mikið æði.

Verð að hætta þessu

Var hjá tannsa í dag eins og í hverjum mánuði og nú eru aðeins 35 mánuðir þanga til ég losan við teinana... allt að gerast

Var ný sest og byrjuð að lesa og varð allt í einu svo ógurlega þreytt. Lagðist því aðeins niður á borðið og stein sofnaði,
vaknaði svo krumpuð og búin að slefa á bókina (sem gerist ansi oft þegar ég sofna á bókasöfnum).

Heyrst hefur að ´83 árgangurinn sé að punga út börnum núna en okkar árganur stendur bara í stað þó að nokkrar hafi eignast börn á unga aldri.

Jæja ætla að vafra meira og reyna að klára að lesa þennan kafla í burðarþolsfræðinni sem fjallar um
Skerspennu, teygni og svo framveigis.

Kossar

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

sem eru ad skoda bloggid